28.2.2007 | 14:32
Hey.
á sama tíma, eða sitt á hvað...þið skiljið, þá bragðast vanilluskyrið
bara eins og besti matur í heimi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.2.2007 | 14:09
Hæ.
Vá blogg er svo neðarlega í goggunarröðinni að það er rosalegt. Reyndar ekkert rosalegt við það þar sem það er mjög langt frá því að vera mikilvægt að vera að blogga eitthvað.
Jæja, það er ýmislegt um að vera hjá mér þessa daga, vikur og mánuði.
Um daginn kepptum við Narfamenn í Laugamótinu og það gekk alveg bærlega hjá okkur. Eldra liðið kannski ekki mjög sátt við sinn hlut en við yngri drógumst í léttari riðil og gekk þar af leiðandi þokkalega. Svo á leiðinni heim byrjuðu menn að fásér og heppnaðist það kvöld vel. Minnir mig...hehe.
Um síðustu helgi fór ég á Þorrablót í Hrísey sem var mjög skemmtilegt. Leiðinlegt þó að komast ekki á matinn en ég reyni bara að troða mér þangað á næsta ári. Það voru margir á ballinu og skemmtu þeir flestir sér mjög vel held ég bara. Geirmundur flottur og rófustappan rosalega á efri hæðinni!
Á milli þessara atburða var sumarglens Greifans haldið, nánar tiltekið mánudaginn 5. febrúar. Þar gerðist margt og mikið, en ég missti af flestur þar sem að ég var hommalegur og fór heim fyrir eitt. Partýið stóð til 5 um nóttina og það innihélt margt sem að gott partý þarf að hafa. S.s. ölvun, pott, áfengi, ælu, sprell, rugl, söng, rusl og síðast en ekki síst stelpusleik í pottinum. Verst að ég frétti bara af flestu þessu daginn eftir...
Næstu helgi er löng helgi í skólanum, fjögurra daga frí gott fólk!! En helgina þar á eftir, sem er fyrsta helgin í mars, ætlum ég, Heiðar, Unnar, Olli, o.fl að bregða landi undir fót og skreppa suður á Incubus tónleika. Við verðum í íbúð þar yfir helgina. Rheyndar geðveikt.
Skólinn mætti ganga betur hjá mér, á milli þess sem ég er að vinna og í ræktinni, nenni ég ekki að læra heima. Það er eiginlega eitthvað sem ég verð að gera og er reyndar byrjaður að reyna... Maður verður að sýna smá lit og klára þetta almennilega.
Talandi um að klára, ég er búinn að fara á tvo útskriftarfundi og við, Olli og Ernir erum í útskrifarnefnd. Á þessum fundum ræðum við hvernig dimmiteringin fer fram og ég verð að viðurkenna að ég er orðinn býsna spenntur fyrir þessu öllu. Þetta verður magnað held ég.
Jæja segiði, sérstakt að vera að blogga eitthvað og sérstaklega sérstakt að blogga svona langt. Hommalegt. Enda þetta á mynd sem er tileinkuð Heiðari en þetta ku vera tybbi bear. Kom allavegna þegar ég googlaði tybbi...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.2.2007 | 00:21
Sérstakt video, en illla gott lag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2007 | 02:02
"Kkkkkkrakkar"
Jæja, merkisdegi lokið.
Byrjaði daginn á að mæta vægast sagt viðbjóðslegur og ógeðslegur í vinnuna kl. 11:30, var þar eitthvað fram eftir kvöldi.
Í einni sendingunni í dag(já, ég má keyra Greifabíl) lenti ég á eftir einhverjum trukk með tank aftaní á vagni. Það er svosem ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að ég varð vitni af því þegar hann gerði sér lítið fyrir og rann niður að gatnamótunum á móti BT varð valdur af fimm bíla árekstri. Glerárgatan var lokuð heillengi og ég er ekki frá því að annar hver bæjarbúi hafi gert sér ferð niðureftir til að skoða...umferðarteppan var ekki skemmtileg um tíma allavegna. Heiðar varð meirað segja eiginlega vitni af þessu líka þar sem að ég var að tala við hann í símann þegar þetta gerðist og lýsti þessu fyrir honum. Vona að löggan lesi ekki bloggið mitt. Ef svo er þá er ég allavegna ekki eineygður að framan og stöðuljósið vinstramegin er í lagi!!
- http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1248238
En að öðru. Hvað er málið með T2 auglýsinguna. Fyrir þá sem ekki vita þá er T2 vatns-gos-bragð-eitthvað-drykkur sem inniheldur víst ekki nem 10 kaloríur í hálfum lítra. Sem samkvæmt auglýsingunni á að vera mikið minna heldur en í sambærilegum drykkjum. Segiði! Af hverju hættir fólk ekki bara þessu rugli og drekkur vatn? Þetta er svo mikil sjálfsblekking og firring! Eins og fólk sem drekkur kók light og heldur að það sé að gera sér voðalega gott með því...hehehehehe. Sumir segja líka að kók light sé bara betra en venjulegt, hehe...nei...það er ekki þannig.
Jæja, þið megið fara þegar ég er búinn að merkja við ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.1.2007 | 21:03
Hversu mikil tilviljun?
Þannig er mál með vexti að ég var að vinna í gær og fór með sendingu uppá vist. Lagði bílnum á litla, þrönga og ógeðslega bílastæðinu norðanmegin. Svo þegar ég er búinn að afgreiða pítsuna dreif ég mig út og inní bíl, skellti honum í bakkgírinn og þrumaði af stað, þá skall ég á einhverju. Eðlilega bregður mér ótrúlega mikið, en mér brá meira þegar ég leit á þann sem ég bakkaði á, hvern annar en Jan Eric æskuvin minn og vinnufélaga á Greifanum. Hann var þarna að skutla félaga sínum heim af æfingu í sínu mesta sakleysi.
Skrítið atvik og mér til varnar þá er bíliinn hans mjög dökkur, var beint fyrir aftan greifabílinn og ég sá engin ljós frá honum!! Fæ samt vel að heyra það á Greifanum þessa dagana, það er svosem gott að menn hafi eitthvað til að hlægja að. En það þýðir ekki að grenja!
En nóg um hrakfarir í bili. Blessaður!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
6.1.2007 | 04:27
Örugglega reyndar mynd dagsins!
Hehe, mig langaði bara til að deila þessu með ykkur. Ég á það til að veðrast upp þegar ég sé keppnistan sem þetta en ég er ekkert abbó eða neitt slíkt en þetta er rosalegt.
Unnar, þar sem að þú hefur nú ekki haldið þessu svona yfir vetrarmánuðina þá legg ég til að þú leggir leið þína á sólbaðsstofu bæjarins eins og Valdimar Þengilsson gerir grimmt þessa dagana, ef að þú vilt ná fyrra formi. Þetta er svakalegt, átti varla til orð þegar ég sá þessa mynd.
Unnar sjókókóngur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.12.2006 | 02:52
2006-2007
Þið kommentið allt of mikið, hafið hemil á ykkur!
Jæja krakkar, árið 2006 að líða undir lok.
Það hefur einkennst af fótbolta, ræktinni, ljósatímum, drykkju, djammi, palla;) og vinnu.
Án efa frábært ár sem hefur kennt mér margt og ég held að ég sé reynslunni ríkari.
Ég vil þakka eftirtöldum fyrir stuðning á árinu:
Olli, fyrir að hjálpa mér að lifa af Íslenskutímana.
Unnar lóðalögga, fyrir góð ráð í ræktinni.
Heiðar 100% vængmaður, fyrir góð ráð við að byggja upp "base-tan" og útá lífinu.
Kristján, fyrir góð ráð í sambandi við hitt kynið.
Maggi Blö, fyrir að vera til.
Siggi Óli, fyrir að fara úr landi svona rétt yfir hátíðirnar.
Darren Fletcher og John O'Shea, fyrir að vera augnkonfekt á vellinum.
Fedde Le Grande, fyrir að vera almennt feitur og spila þokkafulla tónlist.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.12.2006 | 02:40
Hjeeeeehhhh góður.
- Búinn að sofa mikið.
- Fásér föstudags og laugardagskvöld.
- Laugardagskvöldið einkar skemmtilegt.
- Ég rak Jóa uppí dyrastaf.
- Pissaði í kross með Unnari...
- Fékk athugasemd(ekki heimild) á bæði kortin á capone...svalt...NEI.
- Missti af Heiðari í slag:(
- Hef étið slatta af pítsum.
- Skokkað.
- Púðrað.
- Skorað tvö í leik með Narfa.
- Skorað ekki neitt í leik með Narfa og meiddist:(
- Spilaði samt daginn eftir(í kvöld), þökk sé gríðarlega metnaðarfullum og góðhjörtuðum teygjubindum:)
- Skoraði ekki:(
- Á tíma hjá sálfræðingi vegna markaþurrðar kl. 14 á morgun.
- Komst að því að ég skulda meira en ég hélt...
- Ræði það við hann líka...
- Týndi fótbolta:(
- Já og horfði á Napoleon Dynamite með bræðurna Kristján og Heiðar sofandi í rekkjum sínum sitt hvoru megin við mig...geðveikt... Steikt mynd samt.
Bið að heilsa með þessum myndum, bæjóó!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.12.2006 | 01:39
Músin að fara hamförum...
Þvílíkt rugl. Þetta blað er uppfullt af einhverju kjaftæði...einhverjum ferðasögum sem í mesta lagi nokkrir hafa gaman af að lesa og það eru þeir sem voru í ferðunum.
Hvað er svo málið með slúðrið, hverjum datt það í hug? Erlend celebs? Haaa...hvað kemur það vma við...ekkert merkilegt né fyndið við það.
Myndasíðurnar eru líka furðulega uppsettar, óskýrar myndir og helmingurinn af opnunni er tekinn í það eitt að segja okkur að þetta sé myndasíða. Einnig er einkahúmor ekki viðeigandi og hvað þá aulalegar málfarsvillur.
Fínt að segja frá busuninni(sem er gerð góð skil) og helstu atburðum(sem að rúmar kannski eina síðu) en hitt er bara total crap og auglýsingar!
Má vel vera að fólk hafi lagt vinnu í þetta en ég get ekki tekið þessu opnum örmum því að þetta er mjög nálægt því að vera átakanlega lélegt.
Væri gaman að fá skoðun á þessu...ef að fólk leggur í þetta blessaða blað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.11.2006 | 16:33
Hin árlega dramatík...
Vinstri - hægri? Égveitekki.
Þetta - hitt? Ekkiglóru.
Þori engu, kannekkineitt.
Ég hélt að ég væri að verða eitthvað skrítinn...en mér skilst að þetta sé víst eðlilegt.
Ætla að kíkju uppá kletta í kvöld og spangóla aðeins...bæjó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)


